Innlent

Mikill viðbúnaður vegna elds í Ármúla

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Mikill viðbúnaður er í Ármúlanum.
Mikill viðbúnaður er í Ármúlanum. vísir

Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna elds í Ármúla 5. 

Útkallið átti sér stað um hálf tvö leytið í dag. Enginn sjáanlegur eldur er á staðnum en engu að síður er mikill viðbúnaður á staðnum.

Varðstjóri staðfestir í samtali við fréttastofu að allar stöðvar hafi verið kallaðar út og reykkafarar hafi farið inn í húsið. Hann gat ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.

Um er að ræða verlsunarhúsnæði en á efri hæðum eru íbúðir. 

Uppfært kl 13:51:

Að sögn varðstjórakviknaði í rusli í íbúðarhúsnæði og myndaðist þar reykur. Því var um að ræða minni háttar eld og aðgerðum fer að ljúka. 

Fjórir dælubílar og fjórir sjúkrabílar eru á staðnum. vísir

Fréttin verður uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×